Jaeja.. eg held ad eg hafi nu litinn tima til ad blogga herna.. svo eg er nu ad paela ad haetta tessu bara algjorlega.. tangad til seinna..
Monday, September 25, 2006
Saturday, September 09, 2006
Tvær alveg æðislegar myndir
Ég og Barði erum búin að vera ponsu dugleg að kíkja í bíó og við erum alveg búin að vera í skýjunum með þessar. Ég mæli alveg þvílikt með þeim. Little miss sunshine er alveg þvílikt sæt og skemmtileg mynd sem ég mun sjá aftur og Scanner Darkly er scifi eftir philip k. Dick sem skrifaði líka minority report og blade runner.




Annars er allt að smella saman í rútínu því að ég er byrjuð aftur í skólanum og við erum komin með einhver húsgögn í íbúðina okkar. Það er samt ennþá frekar heitt svo að ég er alltaf sveitt og grísí en þetta venst. koss til allra
Monday, September 04, 2006
Tarzaninn minn
Já nú er maður aftur komin í borgina góðu og búin að lenda í allskonar ævintýrum. Við Barði vorum að leita af íbúð í viku og löbbuðum og löbbuðum um alla brooklyn. Við hittum svínið hann Emmett og konuna sem átti hann. Hún sagði okkur að hann væri um 8 ára og þegar hann var tveggja þá fór hann á rosalegt gelgjuskeið og var þvílikt reiður og bitur og beit mikið. En núna er hann rosa góður og át heilan ruslapoka á meðan við vorum að klappa honum. Þvílikt krútt.
Síðan eftir þessa erfiðu viku sem við löbbuðum í rigningu og stundum í hundrað stiga hita þá loksins fundum við íbúð í Lower East Side í manhattan. Við vorum fyrst til að skoða hana og við fengum hana. Marco sem sér um blokkina sagði okkur síðan seinna að það hafi um 60 manns komið og skoðað íbúðina og allir sóttu um að fá hana að við vorum þvílikt heppin.
Strax eftir að við fengum íbúðina þá fórum við á samkomu með íslensku kvikmyndafólki sem var að sýna stuttmyndirnar sínar og auðvitað var reykjavodki að sponsera að við urðum alveg svaka hress. Ég ákvað að fara snemma heim eða um 4-5 leitið vegna þess að ég hafði sofið svo ílla seinustu nætur og var orðin alveg þvílikt þreytt. Barði hélt áfram að tjútta og ég tók einu lyklana og fór heim að sofa. Allt í einu vakna ég og Barði stendur á stofugólfinu alveg brjálaður. Þá hafði hann dinglað og dinglað bjöllunni niðri og síðan náð að komast upp á þriðjuhæðina sem við erum á og dinglað og dinglað á bjöllunni okkar. Og ég vaknaði ekkert. Hann var ekki viss hvort að ég hefði farið út eða hvað ég væri að gera. Siðan náði hann að fara upp á þak og láta sig renna niður sjónvarpsvíra sem liggja útaná 6 hæða blokkinni og náð að tarzanast alla leið niður á glugganum okkar og kom þar inn alveg brjálaður yfir því að ég væri ennþá sofandi eftir öll þessi læti. Já núna er ég með þvílikt samviskubit því að Barði er með 4-5 risastórar brunablöðrur og er með plástra á hverjum putta.
Wednesday, July 12, 2006
sumarið
Jæja sumarið er búið að vera ósköp gott. það sem ég er búin að vera að gera í sumar er að fara á snæfellsnesið með pabba, Guðlaugu og Soffíu. Og hérna er mynd af okkur systrunum.
Síðan fórum við í brúðkaupið hjá Mæju frænku og Einari..

síðan er maður búinn að tjútta í bænum og tók eitt gott á 17. júní

En seinustu daga er maður búinn að vera eins og blóm í eggi og eina sem maður er búinn að gera er að hafa það gott..

Ég skila allavega kveðju til allra frá sveitinni.

Síðan fórum við í brúðkaupið hjá Mæju frænku og Einari..

síðan er maður búinn að tjútta í bænum og tók eitt gott á 17. júní

En seinustu daga er maður búinn að vera eins og blóm í eggi og eina sem maður er búinn að gera er að hafa það gott..

Ég skila allavega kveðju til allra frá sveitinni.
Wednesday, May 31, 2006
Heima er Bezt
Já loksins komin á Eskifjörð. Ég var svo spennt að keyra heim til Eskifjarðar að ég keyrði í 8 klukkutíma í einni bunu og stoppaði ekki einu sinni til þess að pissa. Já en ég var búin að vera í bænum í alveg heila viku og það var tekið svo grimmt á djamminu að ég veit ekki hvort að æðarnar í mér séu hlutfallslega með meira af áfengi í þeim eða blóð.. heh en núna ætla ég að taka því rólega og borða á mig gat hjá pabba því hann er nú aldeilis góður kokkur og síðan fara kannski til Trausta og taka mér spólu. Hafið það gott og látið heyra í ykkur. :)
Friday, May 19, 2006
Mánudgas glaðningur fyrir ykkur öll
Ah, það jafnast ekkert á það að geta fengið sér bjór í hádeginu og rölt um og skoðað í búðarglugga. Ég og Barði byrjuðum að labba í hellidembu í borginni í dag og síðan kom æðisleg sól og þá fór maður úr þykku peysunum og í fína bolinn sem maður keypti sér. Já og það er allt svo ódýrt í China Town. Ég og Barði erum líka byrjuð að pakka öllu dótinu okkar og reyna að skipuleggja hvernig við eigum að koma því öllum heim en Guðlaug er búin að vera svo góð að við getum geymt það helsta hjá henni eins og sængina og nokkrar bækur :) En við erum að koma heima snemma á mánudags morgni og ég verð í bænum bara í viku svo að ég verð að hitta ykkur sem flest áður en ég fer til Eskifjarðar. Ég vona að ég geti nú platað ykkur flest í einhvern glaðning og jú verið ófeimin að hringja í mig í kreisí vitleysu.
Já það var nú leiðinlegt að heyra að hún Ágústa komst ekki lengra en Silvia Night er nú svaka tútta að ég hélt að við myndum rúlla þessu upp. Eurovision er kannski bara of flott keppni fyrir svona amatúra eins og okkur sem erum svo misskilin.
Sunday, May 14, 2006
Pretty Worlds
Já ég og Barði erum algjörlega komin með pretty woman syndromið. Við gerum ekkert annað nema að sjoppa og spila pool og drekka bjór og síðan fór ég líka í klippingu. Við erum búin að breytast úr núðlupakka námsgleðikonur í highclass túrhestagleðikonur. Reyndar í gær sátum við heillengi í garðinum og ég las meðan Barði sofnaði ber að ofan og síðan þegar við fórum í skuggann þá sáum við hversu brenndur hann var greiið. Hann er alveg bleikur á bringunni og á höndunum.. issisis.. Já og í dag þá ætlum við að reyna að túrhestast eins og brjálæðingar.. en við erum bæði búin í skólanum og höfum um viku til þess að gera ekki neitt. Það er ótrúlega fyndið að við erum búin að bíða ógeðslega spennt eftir því að komast í frí en um leið og við erum búin að vera nokkra daga í fríi þá verðum við þvílikt eirðarlaus og dofinn. Já hausinn virkar ekkert eins vel. 
Ég er samt að lesa alveg þvílikt skemmtilega bók. War of the Worlds eftir H. G. Wells og ég er þvílikt spennt og pælið í því að það var gerð útvarpsleikrit eftir bókinni og fólk trúði því að það væru marsbúar að ráðast á jörðina. Mikið af fólki framdi sjálfsmorð og hoppuðu út um gluggann og panikuðu algjörlega.. mér finnst það alveg magnað. En bókin er alveg ótrúlega vel skrifuð og skrítnasta er að Wells fæddist 1866 og skrifaði þessa bók 1898 og þessar brjálaðslegu hugmyndirnar sem maður er með. Marbúarnir sjúga blóðið úr fólkinu og skjóta ljósbima (heiðarleg tilraun að þýða lightbeams) á fólk og það er einhverskonar hitageisli sem lætur fólk bráðna. Já mér finnst þetta alveg þvílikt skemmtilegt og þessi bók er búin að skemmta mér núna seinstu dagana í garðinu og ímyndaraflið mitt fer alveg á milljón.

Ég er samt að lesa alveg þvílikt skemmtilega bók. War of the Worlds eftir H. G. Wells og ég er þvílikt spennt og pælið í því að það var gerð útvarpsleikrit eftir bókinni og fólk trúði því að það væru marsbúar að ráðast á jörðina. Mikið af fólki framdi sjálfsmorð og hoppuðu út um gluggann og panikuðu algjörlega.. mér finnst það alveg magnað. En bókin er alveg ótrúlega vel skrifuð og skrítnasta er að Wells fæddist 1866 og skrifaði þessa bók 1898 og þessar brjálaðslegu hugmyndirnar sem maður er með. Marbúarnir sjúga blóðið úr fólkinu og skjóta ljósbima (heiðarleg tilraun að þýða lightbeams) á fólk og það er einhverskonar hitageisli sem lætur fólk bráðna. Já mér finnst þetta alveg þvílikt skemmtilegt og þessi bók er búin að skemmta mér núna seinstu dagana í garðinu og ímyndaraflið mitt fer alveg á milljón.

